Háleitar hugsanir og vangaveltur
14.05.2006 19:28:05 / Baskins

Útskriftarveisla 20. maí & útskriftarpartý 26. maí

Sumarið er komið :D & þá er ekkert betra en að vera úti í garði að læra víst maður þarf nú á annað borð að læra. Fer líka í 3 próf á 26 klst.! Hef því lítið sem ekkert kíkt út á lífið. Vona bara að veðrið haldist svona í sumar því ég verð aftur að vinna í Fossvogskirkjugarði & byrja föstudaginn 26. maí.

Útskriftin úr Borgó verður (vonandi) laugardaginn 20. maí kl 2 & síðdegis verður líklega boðið upp á kökur & meðlæti heima fyrir alla sem vilja. (Þetta er ekki fjölskylduboð). Um kvöldið er svo aðalkeppnin í Eurovision, svo það er um að gera að djamma. ;p (Það yrði þá líka próflokadjamm hjá sumum).

Útskriftarpartýið verður svo föstudaginn 26. maí í Kafaraklúbbnum í Nauthólsvík (bláa húsið við ilströndina). Þetta er útskriftarpartýið okkar Hörpu, Önnu & kannski Rutar, en þær eru allar í MR. Það verður um kvöldið & eru allir velkomnir. :D Bolla verður á staðnum & ef við finnum styrktaraðila verður bjór í boði. ;)

.

.

.

Var að enda við að eyða öllu :s
Verð að játa að mér líður hálf tómlega. :/
Svolítið skrýtið að vera að henda "dagbókinni" sem hafði verið á lífi frá byrjun apríl 2004 til lok maí 2006...Það er eins & ég sé að henda kafla úr lífi mínu. :(
En ætli það sé best, svo þetta verði ekki grafið upp einhvern tíman í fjarlægri framtíð. ;)

en framhaldið heldur áfram á
http://www.blog.central.is/girlur  ;)

Takk fyrir mig
Sigrún ;*

 


» 21 hafa sagt sína skoðun